..
» Annað
23.01.2008 23:23:26 / stebba

bennibenna

Np; Vinur þinn – Dabbi T <3

Hæhæ, jaaa.. frétti að það vantaði blogg hérna ef þessi síða á að lifa eitthvað örlítið lengur? .. elleeen ! .. hvað segiru um að blogga lover? ;D .. eeen allavega þá hef ég ekkert að blogga um samt .. eina sem ég er búin að gera er bara skóli – tjill og vinna annaðslagið .. tók reyndar eitt ágætlega gott djamm um seinustu helgi 0 .. ég, svandís og kristín lind byrjuðum að drekka og skemmta okkur í  guitar hero og singstar hérna heima ;p .. og fórum síðan á pepe‘s .. og það var very good bara .. fór svo í vinnu daginn eftir sem var ekki alveg jafn good .. haha ! .. eeen svo er það bara Benny Benassi 2.feb ;D .. jeeee! Hlakka of mikið til ;P .. djammdjammdjamm.. 0 .. en jájá, vildi bara setja eitthvað smá hérna inn .. vi ses ;D

- Stefanía ;*


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 01:06:51 / stebba

sæliiir !

 

 

Np; Ruby – The Kaiser Chiefs
Mood; Ágætt bara !


Hæhæ, ætli ég bloggi ekki annað blogg hérna fyrst ég hef ekkert annað að gera ;o Skólinn semsagt byrjaði á mánudaginn, er með ágætis stundatöflu bara ;) .. er alltaf í tvöföldu hádegi nema á miðvikudögum þá er ég í þreföldu hádegi takk fyrir ;) aldrei lengur en til 4 í skólanum og er kl. 10 í skólanum á þriðjudögum ;) jááms, þannig ég er bara nokkuð sátt.. þó að ég haldi að ég sé að fara að skíta á mig í Sögu og Sálfræði, neett ! .. En allavega, þá ætla ég ekki að gera heilt blogg um skólann takk :) .. Hannes kom frá Rvk í gær .. og hann keypti PS2, Guitar Hero 3 og 2 gítara .. oog ég er komin með illt í puttana sökum ofnotkunar, mæli ekki með því .. verð eflaust komin með feitar harðsperrur í hendurnar á morgun xD .. en ég allavega kláraði leikinn í Easy í dag eftir skóla :&lsquo;) .. haha, jááá það er gaman í guitar hero =D .. en svo gaf krúttíbomban mín mér líka Exodus buxur, 2 zueyork boli, der, 2 lokka, gullfisk, subwaaaaay oooog ég er örugglega að gleyma einhverju :$ .. elskjú ;* <3 .. en já, hinir gullfiskarnir dóu nú um daginn, hinn bara dó og hinn framdi sjálfsmorð .. þannig hann keypti nýjan .. og sá er ýkt krúttlegur og heitir Bólu Hjálmar eins og Freydís Edda bjánastúlka skírði hann .. en jáá, svo erum bæði ég og Hannes í fríi um helgina þannig það er spurning hvað maður skal gera? .. eitthvað um að vera eða? .. Eeeen allavega þá er ég að hugsa um að hafa þetta ekki lengra ! .. held þetta sé bara komið nóg af leiðinlegu bloggi, haha .. ég er stolt af þeim sem nennir að lesa þetta :) .. Bleller ;*

- Stefanía!<3

Funny Phrases

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 00:15:28 / stebba

blogg aftur ! :)

Np; Love Stoned - Dj Tiesto

*************************
Hæhæ ! .. jæja, Ég og Ellen höfum ákveðið að reyna að lífga þessa síðu örlítið við ! .. sama hvernig það mun ganga .. en ég efast samt sem áður um að það verði mjög mikið um blogg og svona .. en við reynum .. ætlum að reyna að koma með myndir og slúður annað slagið .. ef við munum einhvertíman eftir því að taka myndavélina með okkur á djammið ;$ .. en við erum allavega búin að uppfæra allt á síðunni og svona .. þannig að við erum búnar að vera pínku duglegar .. og vonandi bara verðum við það áfram .. haha .. haaa? ellen? ;D ..

En já, annars er bara allt gott að frétta af mér sko, Ég og Hannes erum flutt úr Blómvanginum og búum í Lagarási ásamt Guggu og Gumma :) og það er fínt bara .. jólafríið er bara búið að vera ágætt .. búin að gera voðalega lítið annað en að vinna ;s það er reyndar ágætt á meðan ég hef Freydísi eða Maggó mér við hlið annars getur það verið afskaplega leiðinlegt, hehe .. hmm, hvað er ég búin að gera meira í þessu jólafríi? jújú, Ég og Hannes skelltum okkur suður í heilan 1 dag einhvertíman rétt fyrir jól til þess að ná í bílinn hans Hannesar, veerry good.. og ég fór svo heim um jólin í 3. daga eða e-h og Hannes fór suður og svo kom hann aftur á Annan í jólum og sótti mig á Fásk og við + Hildur keyrðum svo á Esk um kvöldið og fórum á ball með Á móti sól, það var alveg ágætis ball bara :) og svo fórum við bara í Egs eftir það og vinna meira .. Ég og Hannes fórum svo á Fásk á áramótunum og borðuðum heima og fórum svo í fyrirpartý til Ingólfs :) .. og já, það var ágætt .. ég var orðin ofurölvi fyrir 12 og alltof drukkin um 2 og fór heim um hálf 4 eða e-h, neeeett ! .. en það var samt mjög gaman svona til 2 eða e-h ! ;p .. nýársdagur var svo bara tekin í þynnku og að fara uppí Egilsstaði ooog svo bara halda áfram að vinna :o .. svo er það bara skólinn á mánudaginn aftur, er ekki alveg að nenna því nei .. hitta þessa helvítis kennara aftur og þurfa að fara að læra ;s .. fínt að vera bara að vinna .. og þurfa ekkert að pæla í því áður en maður fer í vinnu nema klæða sig í kaupfó peysuna og rölta af stað ;o

Ég held samt að þetta sé bara komið gott hjá mér .. efast um að einhver nenni að lesa þetta .. eeen langt síðan ég hef bloggað almennilega þannig ef einhverjum leiddist svo mikið að nenna að lesa þetta þá má hinn sami vera svo indæll að kommenta ;) .. ég ætla allavega að segja þetta bara gott í bili, veriði sæl ;D .. hehe !

- Stefanía :)



» 4 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 20:26:22 / ellen

ellen bloggar ;D

 

hæhæ ;*

jæja, bloggið mitt númer tvööö :) .. ég er þvílíkt að standa mig ;D
en já, ananrs þá er ekki mikið búið að vera gerast seinustu daga, óvissuballið var seinustu helgi, það var mjög ágætt bara .. mikil ölvun og fleira í gangi, en það er bara fínt ;D
svo var vikan þvílíkt fljót að líða, var samt veik í gær og í dag og það var gríðarlega leiðinlegt því tíminn var svo lengi að líða, en samt smá kósý að fá að sofa svona mikið því ekki get eg sofið neitt frameftir um helgina því eg er að fara helvítis vinna :( .. samt hugsanlega afmæli hjá unni sif sætustu minni, og það lagar helgina klárlega, annars væri hún bara öööömurlega leiðinleg :';) en ananrs, þá er ekkert meira að frétta .. allt bara gengur eins og smjör á brauði :) .. skólinn, ræktin, éta, læra og horfa á friends .. svona gengur þetta eiginlega bara ;D .. kemur kannski einhverstaðar þarna inná milli; éta braddara frá unni ;D iih haha :*
annars þá hef eg bara ekkert meir að segja .. þetta er án efa leiðinlegasta blogg í sögu blog.central.is ;o

Josh Duhamel at The Art of Elysium Presents Russel Young fame, shame and the realm of possibility. November 30, 2005 Amy Graves/WireImage.com - Wednesday, October, 25, 2006, 3:25 AM

ég & nýji kæróinn minn biðjum að heilsa öllum :) ..
hagið ykkur fallega, blessi :*


» 10 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 00:29:24 / stebba

komin með netið =D


<3 

np; stronger - kayne west
mood; ágætt bara

Hæhæ ;* .. jæja, núna er ég loksins komin með almennilegt net :D .. komið net í íbúðina hjá Hannesi og ég er búin að hanga á netinu í allan dag þar sem ég hef ekki komist almennilega á netið síðan ég byrjaði í skólanum :O .. og ég var líka ýkt dugleg og setti inn afganginn af myndunum frá frönskum dögum, betra er seint en aldrei.. hehe, bara 3 mánuðir síðan þeir voru þannig cmon, iih (a) :P .. ég hef samt ekkert e-h heavy mikið að blogga um, ákvað bara að blogga smá svona fyrst ég er komin með netið loksins ;) .. mest það sama sem maður gerir hérna :D .. bara skóli, læra, tjilla með einhverju fólki, svo djamma aðra hverja helgi og vinna í Krónunni hinar helgarnar... mega nice ;) .. svo vill nú svo skemmtilega til að enskukennarinn minn sem kennir 103 .. er örugglega geðveik eða e-h :&rsquo;) .. um daginn byrjaði hún á því að segja að henni langaði að deyja .. og vildi ekki segja okkur afhverju, bara að það væru persónulegar ástæður .. að hún væri zombie og svo fór hún eitthvað að babbla um geimverur og þannig shit .. og endaði svo á því að segja að við mættum skjóta hana, hahaha .. svo bað Sævar hana um að koma .. og þá bara “Alma is dead” .. jáá, hversu spes kennari? Hahaha.. ávallt gaman í tímum hjá henni .. gaman að sjá hvað gerist næst sko, hvort hún verði zombie, geimvera eða hvað kemur næst hjá henni .. afar spennandi .. en jæja, ég er allavega bara farin að rugla eitthvað ;) .. blogga bara meira seinna eða eitthvað, megið endilega kommenta .. þessi síða er svo ógeðslega dauð að það er ekki fyndið ;&rsquo;) bæjó ;*


Stefanía!;*

TinyPic image


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 19:02:31 / stebba

..

 
smá nýtt 
 
hellóó, jæja.. það er komið smá slúður.. og það er neðst til vinstri á síðunni, hljótið að finna það :P en veit einhver um myndir frá ballinu? ;p
 
- Stefanía 

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 22:14:16 / stebba

;o

 
 
 
np; purple - orange
mood; ágætt bara
 
_________________________________________
 
 hæhæ ;* .. ég hef voðalega lítið að blogga um en þessi síða er alveg á grafarbakkanum þannig ég ætla blogga smá ;) .. óvissuballið næstu helgi :D .. mikill stemmari fyrir því hérna í ME, þarf bara að redda einhverjum til að vinna fyrir mig á laug, því ég er ekki alveg að fara að meika það að vinna í 11 tíma eftir ball ;p .. ekki alveg! :) .. ætla ekki að missa af þessu balli allavega ;o .. hmm, helgin var ýkt fín ;* .. var bara með Hannesi alla helgina ;* .. hann er btw fluttur í Egs, og er að leigja með Kristó :p .. sem er best því ég er alltaf bara þar =D .. og þarf ekki að vera að redda mér fari á Rey eða e-h ;o .. een vá hvað þetta er heavy leiðinlegt blogg þar sem ég hef nákvæmlega ekkert að segja þannig ég er að pæla í að slútta þessu bara, fólk má alveg kommenta og svona svo síðan virðist ekki vera alveg jafn dauð (a) .. hehe ;p .. bæbæ ;*
 
 _________________________________________
 
Stefanía ;* 

 

 

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 21:52:01 / ellen

mitt fyrsta bloooogg

 

 np; if you could only see - tonic
 skap; kát og full tilhlökkunnar!;D

hæjó, jæja fyrsta bloggið mitt hérna á þessu ágætu síðu :)
ég veit eg er búin að sökka hérna, en eg hef svo margar ástæður, en nenni samt ekki að telja þær upp hér :';) .. en ananrs, þá er lífið mitt bara mjög ágætt .. skólinn er fínn, fólkið hérna er æði, vinnan er leiðinleg og e-ð fleira, en who cares, því eg er að fara til foooookkin reykjavíkur í fyrramálið og eg get ekki beðið lengur eftir þvi að hitta stelpurnar minar og ömmsluna mína og alla :* .. það verður aaaawesome <3
eeen ananrs hef eg voðalítið að segja sko, eg samt looofa að gera e-ð meira á þessari síðu einhverntímann í endaða næstu viku, því eg get það ekki fyrr en hugsanlega líklegast á miðviku - eða fimmtudag í næstu viku, er heeeell busy þangað til ;p
en annars, þá segjum við þetta gott, blessi beibs :*

 

- lummster <3


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 16:23:20 / stebba

busaferðin ;p

Hæhæ ;* ..við erum ekki alveg þær duglegustu í því að blogga (a) .. eeen allavega þá var farið í busaferð á akureyri á fimmt – föst .. og það var stuð ;D .. ætla að segja smá frá henni ;p

Fimmtudagur; lögðum af stað kl. 9 frá ME .. og vorum komin á Ak kl. 1 eða e-h, og þá fórum við á skauta í skautahöllinni ;p .. ýkt gaman, slökkt ljósin og diskóljós og tónlist ;) .. svo fórum við uppí KA heimili með dótið okkar og beint niðrá listasafn að skoða það í svona korter eða e-h, hehe .. þá var bara frjáls tími til 7 eða e-h og ég og Íris og einhverjir vorum bara í búðum þangað til og þá fórum við í bíó ;p .. máttum velja á milli Astrópíu og Veðramót.. og ég var nýbúin að sjá Astrópíu þannig ég, Agnes, Binni, Egill og einhverjir fórum á Veðramót ;p .. sem er svoo leiðinleg mynd, mæli ekki með henni :&rsquo;) .. var alltaf að sofna fyrir hlé .. en náði að halda mér vakandi eftir hlé ;p .. svo eftir bíóið fórum ég, Ellen og Þorleifur útí nætursölu og Ísmar og einhver gella náðu í okkur þangað og við fórum heim til Ísmars að tjilla, svo komu einhverjir drengir og svo keyrðu þeir okkur heim kl. 12 .. og þá var bara farið uppí KA heimili og voðalega lítið sofið, hehe .. Egill og Binni sáu alveg um það að enginn myndi sofna ;p .. svo sofnaði ég loksins svona 5 eða e-h ..

Föstudagur; Vöknuðum kl. 9 og fórum í morgunmat ;p .. svo fórum við og skoðuðum VMA og svo á subwaaaaay =D .. svo var bara lagt af stað heim og vorum komin á egs um hálf 5 ;p ..

Jæja, nenni ekki að blogga meira í bili ;p .. bleller ;p

- Stefanía ;*


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 01:24:09 / stebba

komin með netið :)

 
Hæ! ;D .. ég er finally komin með netið hérna uppá herbergi :D .. víííj .. fékk annað netkort hjá pabba og svo var Hannes bestastur og fixaði þetta e-h því ég er noob :$ .. og núna allavega virkar þetta ;* .. þannig þá er hægt að fara að gera e-h á þessa blessuðu síðu :) .. ég & ellen erum hérna í 103 ;D .. ýkt fínt að vera hérna bara :p .. og Hannes fluttur alveg austur =D ;* .. en ég ætla ekki að hafa þetta e-h mikið lengra .. ætla að fara að reyna að gera e-h hérna og setja einhverjar myndir inná snapfish :) .. bæjó ;*

-Stefanía!;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 10:35:28 / stebba

nonet!iih


Hii ;p ... við erum ekki með neitt almennilegt net á vistinni í augnablikinu þessvegna hefur voðalega lítið verið gert á þessa síðu (a) .. en það hlýtur að fara að koma og þá smellum við inn einhverjum myndum frá busuninni og svona =D .. eeen ég er í ensku103 (y) geggjað gaman alveg .. alma er náttúrulega beib ;: .. ih, en það má alveg halda áfram að skoða þessa síðu =D .. við erum ekkert hættar eða neitt þannig ;p .. bæjó ;*


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 23:27:10 / stebba

ME á mrg! ;O

sunsethug.jpg

Np; Pump it loud – The Pitcher
Mood; Ágætt bara...

Hæhæ ;p .. ég er búin að setja inn myndirnar frá föstudeginum á frönskum dögum ;p .. hitt kemur einhvertíman bráðum, semsagt þegar ég nenni.. haha! ;) svoo á morgunn er það bara ME =D .. vistin opnar kl. 18:00 .. smá tilhlökkun í gangi sko :p .. eins gott að þetta verði gaman! ;o ii .. svo kemur Hannes örugglega loksins austur í vikunni =D ;* vííí =) .. svo er það bara busunin og busaball og svona einhvertíman í kringum mánaðarmót held ég ;o .. og svo busaferðin =D .. dwídd :) .. en ég nenni samt ekki að blogga meira ;p .. veit ekki hvað það verður mikið gert á þessari síðu þegar við erum komnar uppí egs, eeen kemur í ljós =D .. bæjó ;*

Stefanía :*

iloveyou_1.gif

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 00:34:24 / stebba

fyrsta bloggið (Y)

Image and video hosting by TinyPic

NowPlaying; Are U ready? - Pakito
Mood; Hress bara :)

Hæhæ ;* .. málið að koma með fyrsta bloggið hérna? :) .. hef samt voðalega lítið til að blogga um eeeen reyni að koma með e-h :$ .. allavega þá átti ég afmæli í dag =D .. eða í "gær" þar sem það er komið yfir miðnætti :) .. sweet sixteen 8) .. vaknaði kl. hálf 1 eða e-h og borðaði og sofnaði svo aftur ;$ .. og vaknaði kl. 3 og fór upp í sturtu og svona og svo í vinnu kl. 4 ;p .. var búin í vinnu kl. hálf 8 og þá fór ég heim og svo kom Ellen til mín og við fórum niðrá Sumarlínu og borðuðum með Jónu & Bryndísi :) .. svo fór ég aðeins heim að hitta Helgu & Ægir og svo komu Magnús, Jóna, Bryndís og Ellen að ná í mig og við fórum út í Tungu til Jónu og svo komu Inga, Hildur, Óli, Bjössi, Gunni og Guðjón og við vorum e-h að tjilla bara ;D .. svooo bara var ég að koma heim .. geðveikt alveg? :)
 
 
 
Langar svo mest í heimi á menningarnótt :'/ .. en neinei, ég er bara að fara að vinna um helgina og lonelyast hérna á fásk! geðveikt! 8D .. svo er ME að byrja á miðvikudaginn ;D .. eða vistin opnar á þriðjudaginn, ég & Ellen svo feitast að fara að vera saman í herbergi, dwííd ;* .. en allavega, þá held ég að þetta sé komið nóg í bili =D .. meira later & það má kommenta :) ..

- Stefanía ;*
 

TinyPic image

 

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 19:17:00 / stebba

new ;*

 
..
hellúú ;p .. já þessi síða varð til fyrir svona klst .. þannig að það er voðalega lítið komið inná hana, en þetta kemur allt saman ;D .. gestabókin er allavega í lagi ennþá :) .. blee ;*
 
- stefanía&ellen ;* 

» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 10344
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 mars
RSS tengill